Sonja Líndal
Hestakór
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
Dagsetning
9. febrúar 2010
Klukkan
12.11.2007 22:39:34 / sonja

Nýtt blogg

Skoðið nýja bloggið mitt

sonjalindal.bloggar.is

 

kveðja sonja 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 19:11:14 / sonja

Haustveður úti ullabjakk!

Jæja nú er sumarið senn á enda og þá fer maður að eyða fleiri stundum fyrir framan tölvuna og þá gefst frekari tími til að skrifa einhverjar fréttir af manni hér inn. Allavegana....
Um síðustu helgi smelltum við Friðrik okkur á Fákaflug og kepptum... Ég var 4 inn í úrslit og vann mig upp í annað sætið...það var mjög gaman. Dagrós var bara alveg ágæt en hún reif samt undan sér í forkeppninni og við rétt náðum að tilla skeifunni með 4 fjöðrum...en það tolldi í úrslitunum....hjúkk, nú er þessi krúsírúsídúlla komin í frí....strax farin að sakna hennar.....snökt snökt Friðriki gekk líka mjög vel á hestinum sínum svo þetta var góður túr.
Nú er ég í óða önn að undirbúa flutninga í Hjaltadalinn. Við flytjum draslið okkar á morgun því við fengum far fyrir það en svo fer ég svona sunnudag mánudag eða eitthvað norður. Skólinn byrjar á þriðjudag. Þetta verður örugglega agalega gaman. Læra, hugsa, lifa og starfa með hestum....það er lífið! Fullt af skemmtilegu fólki.....gaman gaman!!!! úbb minns bara farin að hlakka til! :haha:
Jæja skrifa meira seinna.
Gleðilegt haust.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 12:21:26 / sonja

Snilld!

Landsmótið var bara tær snilld og ekkert annað!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 21:47:03 / sonja

Tjekk it át

Frikki minn er í fréttablaðinu í dag....

TJEKK IT ÁT!!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 21:58:01 / sonja

Ef væri til hugarblogg!

Ef það væri til svona blogg þar sem maður gæti bara ýtt á enter í heilanum og þá kemur inn allur flotti textinn sem þér datt í hug að væri gaman að setja á bloggið..... Því einhverra hluta vegna þá dettur mér aldrei neitt í hug til að skrifa þegar ég er sest við tölvuna þótt ég hafði fullt í huga fyrr um daginn. Alltaf endar það á því að maður skrifar eitthvað um það sem maður er að gera eða gerði í gær eða síðustu helgi. Er það eitthvað spennandi? Ég veit ekki....Hjá mér er þetta voða mikið eins....ég vakna, ég tem og ég slæpist eitthvað og fer svo að sofa.

Bara að pæla.

En ég get þá sagt ykkur þetta:

Mamma er orðin fimmtug kerling og það var haldin mikil veisla 24.maí í tilefni af því

Friðrik er orðin útskrifaður með Bs í búvísindum og varð hæstur á bs-ritgerðinni á sinni braut með verkefnið Ágrip hjá íslenskum kynbótahrossum.

Við erum alveg flutt norður, næstum alveg búin að koma okkur fyrir very kósý í kjallaranum, með allt dótið okkar. Það hefði aldrei neitt komist upp stigana í þessu gamla húsi svo það var eina leiðin ef við vildum hafa okkar dót að vera í kjallaranum en það er líka bara fínt.

Eydís og Óli eru búin að eignast krúttilega stelpu.

Þórólfur hennar Guðrúnar er alltaf að stækka og að verða ansi mannalegur gutti.

Ég er orðin agaleg sveitatútta, fer lítið af bæ, fer lítið í sturtu, horfi ekkert á sjónvarp og allt þar fram eftir götunum....þið skiljið hvað ég á við....

Hafið það sem allra best.


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 13:42:10 / sonja

Löt að blogga

Sælt veri fólkið. Ég er voðalega löt e-ð að blogga þessa dagana, veðrið er svo æðislegt að það nær ekki nokkurri átt. Dúndur 8) Verst hvað ég er búin að vera að vinna mikið og hef ekki náð að vera eins mikið úti og mig hefði langað til.
Ég fór í stórskemmtilegt túttuafmæli á laugardagskvöldið. Skrallið byrjaði heima hjá afmælisbarninu Helgu bryndísi. Það var mikið gaman að hitta Sif og Lilju en það eru túttur sem maður hefur ekki hitt lengi:haha: Niður í bæ var haldið og það var gaman, veðrið var svo gott og allir svo glaðir. Ég var úti á hlýrabol klukkan 3 um nótt og ekkert kalt og það var bara varla myrkur einu sinni. Æði! Þegar ég kom svo heim kl 5 þá var bara orðið bjart og það var svo fallegt umhverfið allt spegilslétt og sólin lífgaði upp fjöllin.
Ég sá frekar sjaldgæfan fugl um daginn. Þetta voru Brandendur, very töff. Bara svona ef þið skilduð vilja vita það ;)
Já vorið er svo sannarlega komið elskurnar mínar, folöldin eru byrjuð að koma og það er alveg æðislegt. Pabbi fékk í gær folald undan merinni minni og Kletti frá Hvammi, brúnskjótt hryssa sem verður líklega grá. Draumafolaldið :D
Nú fer að styttast í að ég fari norður í sveitina. Hætti þessu gamlafólkastússi. Hlakka til. Jæja best að drífa sig út í góða veðrið á hestbak og fara svo bara í bíltúr. Lífið er ljúft. Bless í bili. Sonja.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 22:04:42 / sonja

Túttublogg

Síðan síðast. Fór í skírn á sunnudaginn og heitir litli prinsinn Þórólfur Hugi. Mér finnst þetta með mjög fallegt nafn og vil ég óska honum, Guðrúnu og Tomma til hamingju með þetta.
Friðrik var að skila Bs ritgerðinni sinni loksins og við vorum með alveg svakalega góðan mat áðan í tilefni af því. Núna er það bara að hitta mann og annan og skemmta sér eitthvað.
Aðal ástæðan fyrir því að ég er að blogga samt núna er að ég vil vekja athygli á bloggsíðu MH-Túttanna www.blog.central.is/mh-tuttur hún er frekar ný tilkomin og er hún alltaf að batna. Endilega kíkið.
Sonja Sveita-Tútta

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 20:51:23 / sonja

Geggjað dimmisjón

Æðislegur dagur í gær.
  • Sól og sumar
  • Stelpurnar í spandex, þvílíkt flottar.
  • Call on me á fóninn
  • Sjóðheitur dans og allt tryllist
  • Þið eruð lang flottastar!
  • Setti alveg punktinn yfir mína dimmisjón því þá vantaði bara ykkur elskurnar mínar
  • Niður í bæ, svaka stemming
  • Gítarspil og söngur á Austurvelli
  • Sól og blíða
  • Freknur
  • Augun á mér gul....var margsinnis spurð hvort ég væri með litalinsur...hugsa að augun á mér upplitist í sólinni?
  • Fór og keypti skírnargjöf fyrir litla kút Tómasson sem verður skírður á morgun
  • Heimsótti tengdó, þau bæði fárveik í rúminu með lungnabólgu...
  • American style, fínasta píta þar
  • Læti í okkur og mikið hlegið, úps en við vorum ekki rekin út
  • Hverfisbarinn
  • Hiti, sviti, dans og stuð
  • Mörgum lítrum af bjór hellt yfir mig, það þornaði ekkert mál
  • Pizzusneið á Devitos
  • Bælið, ahh það var gott eftir langan en yndislega skemmtilegan dag
  • Kíkið endilega á myndirnar frá Jönu www.picturetrail.com/janakatrin
Já þetta var æðislegur dagur. Núna er ég komin í sveitina og er að fara í skírn á morgun.

Lífið er yndislegt!


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 18:06:27 / sonja

Hestakaup? Nei ekki svo ég viti til....

Ég lenti í alveg fáránlegu atviki áðan. Það var maður sem hringir í mig og spyr hvort að þetta sé ekki Sonja Líndal og ég jánka því, þá segir hann já Kjartan heiti ég og á Nökkva og ég bara oki só. "Hann er lagður af stað með Kobba á Dúki" Ég bara ha hver? hesturinn? "já og þú ætlaðir að láta mig hafa hann Faxa í staðinn." WHAT? ég á engan Faxa. "Hva er einhver önnur þarna í Húnavatnssýslunni sem heitir Sonja Líndal?" Nei það er enginn annar sem heitir þessu nafni.... Og þá hafði þessi maður farið í hestakaup í gegnum e-mail og sendi hestinn bara af stað og nú er hann á leiðinni á Lækjamót og ég bara vissi ekki neitt.... EF ÞÚ ERT AÐ ÞYKJAST VERA ÉG VILTU HÆTTA ÞVÍ EÐA ALLAVEGA LÁTA MIG VITA!!!! Ég spurði þennan mann sem hljómaði alveg fertugur þessvegna og var bara í fjósinu (ég heyrði í beljunum á bakvið) hvort hann væri nokkuð að gera at í mér. Hann neitaði því enda hljómaði þetta ekkert þannig. Ég vissi að hestaflutningabílstjórinn Kobbi á Dúki var á ferðinni í dag þar sem ég sá hann á Mið-Fossum....kannski bíður bara hestur heima á Lækjamóti.....úps. En þetta er verulega fáránlegt en það eru þá greinilega fleiri e-mail á mínu nafni til en þau sem ég á og nota....
Hver er að gera þetta???? það hlýtur að vera einhver sem ég þekki...... VILTU GEFA ÞIG FRAM!!!!
En af öðru. Þá er ég ásamt Friðriki, Jönu og Sigga að fara á ístöltið-þeir allra sterkustu annað kvöld og ég hlakka mikið til. Það væri gaman að sjá fleiri vini og félaga....þetta verður þvílíkt stuð....allir að drífa sig....svo er ball með Geirmundi á eftir....EKTA.
Bless í bili. Vonandi reddast þetta með þessi blessuðu hestakaup sem ég (en samt ekki ég) var að standa í.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 19:39:11 / sonja

trallallallala

  • Ég fór í tvítugsafmæli hjá Höbbu á Glaumbar á laugardagskvöldið. Það var mikið stuð og mikið gaman þangað til Jana var rekin út þar sem hún gleymdi veskinu sínu og var ekki með skilríki (þetta er ekki klisjan ó æ ég gleymdi veskinu mínu, má ég ekki vera) En þetta var bara mjög gaman.
  • Nú styttist í páskana og ég fæ óvenju mikið frí svo ég er ánægð með það. Ég verð í fríi föstudaginn langa og laugardag vinn svo aðfaranótt mánudags og aðfaranótt þriðjudags og fæ svo aftur 2 daga frí eða 3 daga með svefndeginum. Ég ætla til Reykjavíkur á laugardaginn og fara á ísmótið- þeir allra sterkustu. Það verður geggjað stuð. svo ætla ég norður í næstu viku, verð komin norður yfir heiðar á þriðjudag. Loksins loksins það er langt síðan ég hef komist norður.
  • Jæja ég ætla að fara að borða dýrindis kjúklingabringur, salat og sósu namm namm og í leiðinni ætla ég að grenja yfir því að Dagrós var að slasa sig aftur...fjandans. Skrambans skaflaskeifur.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 22:58:54 / sonja

Ólgusjór í maga

- Ólgusjór í maga....nei ég er ekki ólétt
- Beylaði á afmæli í kvöld hjá Sillu, vá hvað ég er ömurleg eða oki ég er slöpp
- Dagrós meiddi sig.... :( göt eftir skafla á framfæti
- Ég er að vinna sjúklega mikið fram að páskum
- Ætli þessi sinubruni fari ekki bara að brenna Borgarnes til kaldra kola....hann er alveg brjál....en loksins hefur gamla fólkið eitthvað að tala um annað en veðrið. Þeir sem eru gleymnir heyra nýjar fréttir um sinubruna á Mýrum á hverjum degi.
- Nýbúin að drullast til að klára lopapeysuna sem ég byrjaði á í haust, svolítið bjöguð skökk og snúin og ber þess greinileg merki að þetta er mín fyrsta lopapeysa.
- Nú er það bara næsta og það er á hann Frikka minn. Stefni á að geta gefið honum hana í jólagjöf....
- Ég hlakka geggjað til að fara í sveitina að temja. Ég þarf víst að bíða aðeins lengur.
- Megas minn er til sölu ef þið vitið um einhvern sem vantar reiðhest.
-Við vorum með heimatilbúna pizzu í kvöldmatinn, alltaf góð en mallakútnum hætti ekkert að vera flögurt samt.
- Bensínverðið er sjúklega hátt. Það fer bráðum að hætta að svara kostnaði að keyra í vinnuna....
- Humm ég ætti eiginlega að skrifa eitthvað aprílgabb hummm.....tja
- Ég er með 6 tær og gillinægð.


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 11:14:29 / sonja

Tómt rugl en gaman

Síðustu dagar hafa verið nokkuð viðburðaríkir. Á fimmtudaginn fór ég á sýnikennslu hjá Reyni Aðalsteins og eftir það fór ég í grillteiti í fjárhúsunum og borðaði þar dýrindis kjöt sem frikki minn matreiddi. Eftir það var að sjálfsögðu haldið á barinn. Ég var nú ekki langt fram eftir nóttu því ég var að vinna á föstudagsmorgun. Á föstudagskvöldið fór ég í leikhús með mömmu og tengdamömmu, við fórum að sjá Eldhús eftir máli sem er sérdeilis prýðileg sýning. Í gær þá byrjaði ég daginn á sjopping túr með Jönu í kringluna...það er mjög langt síðan ég hef sjoppað. Ég keypti mér buxur, bol, belti, hálsfesti og kamb í hárið. Jana keypti bol og belti. Allt var þetta nottlega geggjað flott. Því næst brunaði ég upp í Mosó að sækja hann Ísak Þóri og við smelltum okkur saman á Ronju Ræningjadóttur. Mikið rosalega var það gaman og Ísak skemmti sér konunglega. Eftir að ég hafði skilað af mér drengnum kíkti ég í hesthúsið til Jönu og svo til tengdó í mat. Þá byrjaði ruglið....
planið hjá mér var s.s að fara í leikhús með Elínu á MH sýninguna og svo í afmæli til Sifjar í Keflavík. Svo frétti ég það að sýningin væri svo löng að ég myndi rétt ná í endan af afmælinu ef ég færi á sýninguna svo ég hætti við það og við Elín ætlum bara seinna...oki þá var stefnan tekin á afmæli. Ég fer heim til Jönu að taka mig til og við erum orðnar þvílíkar gellur í nýju fötunum og allt tekur þetta tíma sinn en við tökum ekkert eftir því hvað tímanum líður og höldum áfram að gellast. Svo bætist fólk í hópinn og það er bara kósýgóð stemming heima hjá Jönu og bara gaman. Þá varð Jönu litið á klukkuna. Shit hún var orðin 11 og við ekki farnar til Keflavíkur enþá og demit við ætluðum að drífa okkur en það kom í okkur efi því klukkan var orðin svo margt og við tja ja oki förum þá bara á knapagleði framhaldsskólamótsins.... Þegar við komum þangað þá fengum við menningarsjokk....þarna var allt morandi í krökkum sem eru að keppa í unglingaflokki, skrækjandi og tónlistin hræðileg...við vorum bara gamlar...fokk. Við jöfnuðum okkur aldrei almenninlega á þessu þótt meðalaldurinn hafi hækkað eftir sem leið á kvöldið. Miss World kom t.d en ég ætla ekki að vera að slúðra um hana hér. Við jana vorum alltaf með hugan við það hvað við værum ömurlegar að beyla í afmælinu og vorum alltaf að spá í að fara þó við myndum bara hitta hana down town kef. Aldrei gerðist neitt. En kl 1 þá förum við og rúntum, lendum í hinu og þessu á select eins og gengur og gerist, pylsa með kartöflusalati, íris að missa sig í einhverju rugli, næstum slagsmál, hitti mhinga, hitti ísólf og vigdísi og hitt og þetta. Eftir þetta þá fjaraði kvöldið út og við fórum heim. Þetta var samt skemmtilegt kvöld sérstaklega framan af og mjög fróðlegt....Við vorum allavega gellur.....:) En það sem ég ætlaði að gera....leikhús og afmæli....humm úps.... Sorrý Elín og sorrý Sif ég veit ég er ekki best í heiminum núna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 10:38:08 / sonja

Forkeppni ístöltsins

Halló. Ég gerði það skemmtilegasta sem ég hef gert lengi um helgina....ég reið á ís í skautahöllnni í reykjavík. Þetta var sjúklega gaman og þetta gekk bara mjög vel miðað við að þetta var í fyrsta skipti sem við Dagrós keppum saman. úúú já þetta er eitthvað sem allir ættu að prófa einhverntíma þetta er sjúkt. Það voru um 100 keppendur og rosalega hörð keppni, nú bíð ég bara spennt eftir því að fara að horfa 1.apríl á ístöltið...vonandi hitti ég þar fullt af fólki sem ég þekki og það verður mergjað stuð.....ætla ekki allir að drífa sig??
Í gær var góður dagur líka. Mamma og pabbi komu í heimsókn til að skoða hrossin sem við erum að þjálfa fyrir þau...svo skelltum við okkur heim og elduðum þennan dýrindis mat sem við vorum búin að undirbúa.....fylltur lambahryggur, kartöflugratín og salat og auðvitað ís á eftir annað væri nú alveg ómögulegt.
Já þetta var góð helgi og nú tekur bara við vinna og vinna.....
Blessykkuröll
Sonja


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 10:08:36 / sonja

Ungfrú Suðurnes

Sæl öllsömul
Ég átti alltaf eftir að vekja athygli á því að Sif vinkona varð ungfrú Suðurnes....hún er nú meiri skutlan!!!! Gat ekki annað en keypt séð og heyrt sem ég sá á bensínstöðinni áðan þegar ég tók bensín þegar ég sá að skvísan var þar í. NONONOH hún er bara svaka flott. Já nú er stefnan tekin á Ungfrú Ísland og við vinkonurnar verðum þar til að hvetja að sjálfsögðu. Svo ég er bara að fara á Ungfrú Ísland í maí, það verður ábyggilega gaman. Einhvernvegin datt mér ekki í hug að ég færi einhverntíma að horfa á það en þegar vinkona manns er í því þá er ekki annað hægt. Já til hamingju Sibba þú ert æði!


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 00:52:01 / sonja

Strákakrútt

Já Guðrún og Tómas eignuðust strák á miðvikudagskvöldið....ég fór og hitti þau áðan á sjúkrahúsinu á akranesi og jiminn eini hvað drengurinn er æðislega sætur....enda undan úrvals foreldrum. Ég færði þeim að gjöf geggjað flottan nike samfesting...rosa töff...en það verður langt langt þar til hann passar í hann því hann er svo ógurlega ógurlega lítill eitthvað, sjúkrahúsfötin sem hann var í voru of stór á hann meira að segja. En ég vil bara enda á því að óska þeim innilega til hamingju með litla engilinn sinn, litla prinsinn.
Kveð að sinni


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4